Storieta
English
Sign up

The opening · free to read

Hvað er það, sem gerir konur yndislegar í augum karlmanna?

Eg er sannfærð um, að engin sú kona er til og hefir aldrei verið til, sem eigi hefir lagt fyrir sjálfa sig þessu líka spurningu einhvern tíma á æfinni, og þá helst meðan æskan og fegurðin voru í blóma sínum; þegar lífið brosti við og vonirnar voru sem bjartastar og himinháu skýjaborgirnar enn ófallnar, þá hefir þessi spurning komið fram í hugum allra kvenna og hver hefir reynt að svara henni eftir bestu vitund--með framkomu sinni.

Það er tilgangur minn með þessum bæklingi, að reyna að benda ungum og gömlum kynsystrum mínum á ýmislegt það, er verða mætti þeim til leiðbeiningar í umgengni og samlífi við karlmenn, og einkum hvernig þær eiga að hegða sér og haga til þess að verða yndislegar í þeirra augum.

Vitanlega verður þessi tilraun mín afar ófullkomin, enda eigi á hvers manns valdi að rita stóra bók um þessi efni, en á það er einnig að líta, að verðmæti bóka fer eigi eftir blaðsíðufjölda og orðamergð þeirra, heldur eftir hinu, hvort bókin ber á borð fyrir þjóðina heilnæmar og siðbætandi kenningar, hvort heldur eru um landbúnað eða ástamál.

Að svo mæltu sný eg mér að efninu og bið þig að fylgjast með mér og veita þeim bendingum athygli, sem eg vil gefa þér, til þess að þú getir orðið yndisleg í augum karlmanna, einkum þó unnusta þíns eða eiginmanns.

Já, hvað er það, sem gerir konur yndislegar í augum karlmanna?

Það eru eigi fötin, hatturinn, skórnir eða fingurgullin. Og það er heldur eigi fegurðin ein. Gyðju-fríð kona getur verið svo köld á svipinn--svo albrynjuð stærilæti og stolti--að fegurð hennar hrífur engan karlmann.

Það sem gerir konuna yndislegasta í augum karlmanna er blíða hennar og yndisþokki, háttprýði hennar í allri framkomu, bros hennar, augnatillit og málrómur, fótatak og allar hreyfingar, ást hennar og næmur skilningur á öllu því göfgasta í tilverunni, fórnfýsi hennar og sjálfsafneitun, sem glöggast kemur fram hjá mæðrum við börn þeirra. Alt þetta myndar einskonar geislabaug, er sumar konur bera svo sýnilega með sér og hefir göfgandi en um leið töfra-mikil áhrif á karlmennina, vermir hjörtu þeirra og opnar þeim nýja heima og nýtt útsýni yfir lönd ástarinnar.

Sumar konur virðast fæddar með þeirri hamingju að vera pilta-gull, en eigi eru þær að fremur meiri mannkostum búnar en hinar, enda eru þess mörg dæmi, að bestu kvenkostirnir sitja auðum höndum á akri ástarinnar og fá eigi að hafst--af ýmsum ástæðum.

Röddin.

Rödd þín og orðaval á mikinn þátt í því, hvort þú ert yndisleg í augum karlmanna eða ekki. Þess vegna er þér áríðandi að temja vel rödd þína og vanda vel orðbragð þitt. Mild og hljómfögur rödd, samfara ástríkum og fallegum orðum, bræðir klaka hinnar köldustu sálar. Temdu þér mildan og blíðan málróm, en því fegurri sem málrómurinn er, því vandaðra verður orðbragð þitt að vera. Falleg rödd og ljót orð eiga ekki saman.

Mér finst ástæða til að vara þig sérstaklega við orðskrípum eins og þessum: hvað hann sé "sætur", "pen", "lekker"; þetta eða hitt sé "vemmilegt", "kedelegt", "svart", "brogað"; hvað "fríseringin sé óklæðileg"; hvað þessi kjóll sé "himneskur" og að hrópa "almáttugur" í annari hverri setningu.

Augun.

Hið þögla mál augnanna er öllum elskendum dýrmætara en nokkur orð og í einu augnatilliti getur falist meira en orð fá lýst, hvort sem það er ást, hatur eða fyrirlitning.

Það er oft hægt að kynnast manni betur á einu augnabliki, með því að líta í augu hans, heldur en með langri samveru.

Í augunum speglast sálin og ef augnaráðið er kæruleysislegt og flöktandi, má ganga að því vísu, að það óstöðuglyndi eigi sér rætur í sál mannsins.

Sama gildir auðvitað um konur.

Þú skalt varast að nota augu þín mikið til þess að hafa áhrif á þá, sem þú þekkir eigi. Augna-daður er ljótt og ósiðsemis-einkenni.

Líttu altaf djarflega og með hreinskilni í augu annara og vertu eigi feimin né undirleit, því að þú hefir engu að bera kinnroða fyrir, ef þú kemur fram með siðprýði.

Á götum úti skalt þú líta djarflega framan í karlmenn en þú mátt eigi brosa framan í þá (ef þú þekkir þá eigi) né líta um öxl til að horfa á eftir þeim.

Brosið

er eigi ver til þess fallið að túlka tilfinningar hjartans heldur en augnaráðið, og einlægt bros er jafnan áhrifamikið og getur svalað þystri sál og fullnægt þrá hennar.

Það er hægt að brosa á ýmsa vegu: lymskulega, glettnislega, biturlega, kuldalega og blíðlega. Af því sérðu, að brosið er þeirri konu "voldugt vopn í hendi", sem með það kann að fara, og er undir mörgum kringumstæðum lykill að hjarta karlmannsins.--En það er eins með brosið og augnaráðið, að of mikið má af því gera að brosa, og síbrosandi kona er þreytandi.

Þú mátt heldur ekki brosa eða hlæja að öllu, alvarlegu jafnt sem skemtilegu, og eigi máttu brosa framan í hvern mann, sem verður á vegi þínum, og umfram alt forðast hið reykvíkska veiðibros, sem algengt er á vorum dögum.

Handtakið

hefir mikla þýðingu og getur borið mikinn ávöxt. Því er haldið fram, að manninn megi mikið þekkja af handtaki hans. Sumir taka svo laust í hönd þess, sem þeir heilsa eða kveðja, að líkast er sem þeir séu hræddir við að snerta hana. Slíkt handtak ber ekki vott um, að mikill innileikur sé að baki. Ef þú vilt láta karlmann finna ylinn frá hjarta þínu, þá skaltu þrýsta hönd hans hlýlega og til þess að gera handtakið enn áhrifameira, líta í augu hans um leið. Engum manni getur dulist ylurinn, sem liggur að baki því handtaki, og það hlýtur að hafa áhrif, ef maðurinn getur annars orðið fyrir áhrifum frá þér. Og flestir munu hugsa með sjálfum sér síðar: Mörgu hefi eg gleymt af því, sem á milli okkar fór, þegar við vorum saman, en aldrei gleymi eg þó handtaki hennar.

Göngulagið

er einnig vert að vanda, þvi að það er hörmulega ljótt að sjá fríðar konur hafa ljótt göngulag: bognar í baki, hoknar í knjáliðum, þramma áfram áhyggjufullar--á skökkum og skældum stígvélum,--eins og allar skuldir höfuðstaðarins hvíldu á herðum þeirra. Sumar tifa ótt og títt eins og vasaúr, aðrar róa fram og aftur (um herðarnar) eins og hlaupastelpa í rokk.

Þú skalt ganga stilt og rólega með jöfnum skrefum og samstiga þeim sem þú gengur með, en vingsaðu höndunum eigi mikið, því þú getur þá barið náunga þinn á götunni, ef fjölmennt er úti.

Að lita andlitið.

Það virðist færast í vöxt, að konur liti andlit sitt með ýmsu móti og æfinlega í þeim tilgangi að sýnast fallegri en þær eru í raun og veru.

En nú skal eg segja þér eitt: Andlit þitt er svo fallegt frá skaparans hendi--þó að þú sért óánægð með það--að þú getur eigi gert það fallegra með gervilitum ("smínki"). Hann hefir engan skapað ljótan og áreiðanlega ekki ætlast til þess, að nein af dætrum hans færi að mála sig í framan.

Þú getur með mörgu móti varðveitt fegurð þína, en til "smínksins" máttu aldrei grípa.

Lauslætiskonan--sem er litljót--á að hafa einkarétt til að "smínka" sig.

Þú skalt aftur á móti bera gott og litlaust "créme" á andlit þitt og núa eða strjúka andlitsvöðvana um leið. Það heldur húðinni vel mjúkri og kemur í veg fyrir allar hrukkur, sem sett gætu skugga á fegurð þína.

--Þú mátt einnig nota lítið eitt af góðu andlitsdufti ("púðri"), en það má ekki vera áberandi.

Ilmvötn.

Þá ættir altaf að nota ofurlítið af góðu ilmvatni í föt þín--minsta kosti sparifötin--en gæta þess, að gera það í hófi. "Hóf er best í hverjum hlut." Einnig er gott að bera góð ilmefni (hárvötn) í hárið við og við og núa því inn í hársvörðinn.

Hvorttveggja þetta hefir sín áhrif á karlmennina, því að þeim fellur það illa, að finna eldhúslykt eða fúkkalykt úr fötum þeirrar konu, sem þeir eru með á opinberum stað, t. d. í leikhúsi eða veitingahúsi.

Eg endurtek það, að þú verður mjög að gæta hófs í þessum efnum.

Þú skalt aldrei nota hárlit.

Klæðaburður og þrifnaður.

"Fötin skapa manninn," segir máltækið, en það er eigi sannmæli nema að hálfu leyti. Ræfillinn er alt af ræfill, hvernig sem hann er klæddur.

The book keeps going

Keep reading, and see it illustrated

Reading is free forever. Sign up and watch scenes appear while you read.

Illustrated scene from FrankensteinIllustrated scene from The Great GatsbyIllustrated scene from Pride and Prejudice

Scenes Storieta drew for other classics.

New illustrated classics

A new classic, drawn, in your inbox.

Once or twice a month: the latest books to get full character casts, scene art, and free comic editions. No account needed.